Translate

föstudagur, 12. júlí 2013

föstudagur

loksins er kominn föstudagur, í dag ætlum við guðný að fara í bæinn, þegar hún er buin að vinna. fá okkur eitthvað gott að borða, væri alveg til í að prófa nýjan stað sem heitir Kopar, ég er búin að heyra svo margt gott um hann, annars fáum við okkur örugglega steik á gamla vínhúsinu, það er líka mjög gott.
svo á laugardaginn æltum við að kíkja á útsölur og keyra svo útá skaga til að fara í afmæli til ömmu.

í gær var svona lala veður, ég fór út og hleypti hestunum út, eldaði fyrir okkur pabba (afganga því mamma var ekki heima í hádeginu), fór í göngutúr upp að Vatni. ég framkvæmdi líka eina tilraun, tók svona lambhagasalat úr pottinum (eins og maður kaupir í bónus) og gróðursetti hjá jarðarberjunum hennar guðnýjar, ég er spennt að sjá hvað gerist.

guðný var líka búin að vinna snemma í gær svo við skelltum okkur í sund í varmalndi og hittum ingunni, hún fór með okkur í leiðangur undir sundlaugina og í gömlu smíðastofuna okkar, og vá hvað ég fékk mikið flashback, það var allt alveg eins og þegar við vorum í smíði þar fyrir vona 7 árum, lyktin og allt.

en já planið í dag er að setja hestana út, prjóna, göngutúr, kannski þurka af inni hjá afa ef mamma heldur að hann komi fljótlega, og fara svo í bæinn, hlakka til að nota nýju skónna mína sem ég fékk í afmælisgjöf frá Sigga sæta.




miðvikudagur, 10. júlí 2013

Dagurinn í dag

ég er búin að ákveða að reyna að vera dugleg að setja myndir frá deginum.

En allavega í dag tókst mér að :

-fela endana á peysunni sem ég var að klára, ákveða hvernig næsta peysa ætti að vera og byrja á henni, er komin alveg þó nokku langt þótt ég segi sjálf frá ;)


-fór út og hleypti hestunum út úr sveltinu

-borðaði hádegismat með mömmu og pabba og það var æðislega gott hakk og pasta, love it

- eftir hádegið fór ég í göngutúr með Snotru og Loppu og við kíktum á trippin sem eru í gömlu hestagirðingunni, vá hvað ég ætla aldrei að kíkja á þau aftur ein því þau eru svo frek haha, frekar leiðinlegt að vera föst í miðjunni ein.... en eitt fyndið, ég var smá að beygja mig niður og þá kemur Ugla og fer að narta í myndavélatöskuna, mér bregður og þá bregður henni líka þannig að taskan sveiflast eitthvað uppí loftið, og næ að koma mer í burtu áður en hún labbaði á mig... en svo fattaði ég að lokið á linsuna var í töskunni og hafði sveiflast uppúr, þá sný ég mér við og Ugla er komin með það uppí munnin og hélt greinilega að það væri hestanammi handa sér haha





-mér tókst að ganga frá tjaldinu síðan um helgina
-fór og sótti kýrnar ein
-rak hestana aftur inní sveltið fyrir nóttina
-og hreyfði mig í um 20 mín eftir plani í nike-appinu í símanum, það er mjög skemmtilegt og margt hægt að velja úr um, mæli alveg með því :)

annars er ég búin að vera ágætlega dugleg í að borða hollt í dag, fékk mér samt köku í kaffinu, en ekkert annað nammi, sátt við það. Ætla samt að leyta af brauðuppskrift í hollari kanntinum.

xx

10.07.13 fyrsta

Jæja hér langar mig að gera tilraun í að blogga, mig hefur lengi langað að prófa það en kem mér aldrei í það, núna er ég komin í sumarfrí og það er ekkert brjálað á dagskránni að gera, þannig þetta er tilvalinn tími til að byrja... einnig datt langar mig rosalega að komast í betra form en ég nenni heldur aldrei að gera neitt í því, þannig að mér datt í hug að skrifa um hvernig mér gengur hér og hvort að það myndi ekki gefa mér smá auka kraft.

hér ætla ég að tjá mig um daginn og veginn, tísku, matinn sem ég borða og hreyfingu

í dag er ég búin að ákveða að kíkja á trippin fram á Hömrum (2km göngutúr) og gera 30 mín æfingu úr nike-appinu í símanum. ég ætla líka að byrja að prjóna peysu sem við Guðný ætlum að gefa frænku okkar í giftingagjöf í haust. Svo ætla ég að reyna að setja myndirnar síðan um helgina á facebook, en sé til hvernig tímanum líður og hvort Siggi sæti ætli að koma eða ekki.

ég þarf að ákveða hvernig peysu ég ætti að prjóna, í augnablikinu líst mér best á einhverja af þessum: