loksins er kominn föstudagur, í dag ætlum við guðný að fara í bæinn, þegar hún er buin að vinna. fá okkur eitthvað gott að borða, væri alveg til í að prófa nýjan stað sem heitir Kopar, ég er búin að heyra svo margt gott um hann, annars fáum við okkur örugglega steik á gamla vínhúsinu, það er líka mjög gott.
svo á laugardaginn æltum við að kíkja á útsölur og keyra svo útá skaga til að fara í afmæli til ömmu.
í gær var svona lala veður, ég fór út og hleypti hestunum út, eldaði fyrir okkur pabba (afganga því mamma var ekki heima í hádeginu), fór í göngutúr upp að Vatni. ég framkvæmdi líka eina tilraun, tók svona lambhagasalat úr pottinum (eins og maður kaupir í bónus) og gróðursetti hjá jarðarberjunum hennar guðnýjar, ég er spennt að sjá hvað gerist.
guðný var líka búin að vinna snemma í gær svo við skelltum okkur í sund í varmalndi og hittum ingunni, hún fór með okkur í leiðangur undir sundlaugina og í gömlu smíðastofuna okkar, og vá hvað ég fékk mikið flashback, það var allt alveg eins og þegar við vorum í smíði þar fyrir vona 7 árum, lyktin og allt.
en já planið í dag er að setja hestana út, prjóna, göngutúr, kannski þurka af inni hjá afa ef mamma heldur að hann komi fljótlega, og fara svo í bæinn, hlakka til að nota nýju skónna mína sem ég fékk í afmælisgjöf frá Sigga sæta.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli