hér ætla ég að tjá mig um daginn og veginn, tísku, matinn sem ég borða og hreyfingu
í dag er ég búin að ákveða að kíkja á trippin fram á Hömrum (2km göngutúr) og gera 30 mín æfingu úr nike-appinu í símanum. ég ætla líka að byrja að prjóna peysu sem við Guðný ætlum að gefa frænku okkar í giftingagjöf í haust. Svo ætla ég að reyna að setja myndirnar síðan um helgina á facebook, en sé til hvernig tímanum líður og hvort Siggi sæti ætli að koma eða ekki.
ég þarf að ákveða hvernig peysu ég ætti að prjóna, í augnablikinu líst mér best á einhverja af þessum:
Engin ummæli:
Skrifa ummæli