ég er búin að ákveða að reyna að vera dugleg að setja myndir frá deginum.
En allavega í dag tókst mér að :
-fela endana á peysunni sem ég var að klára, ákveða hvernig næsta peysa ætti að vera og byrja á henni, er komin alveg þó nokku langt þótt ég segi sjálf frá ;)
-fór út og hleypti hestunum út úr sveltinu
-borðaði hádegismat með mömmu og pabba og það var æðislega gott hakk og pasta, love it
- eftir hádegið fór ég í göngutúr með Snotru og Loppu og við kíktum á trippin sem eru í gömlu hestagirðingunni, vá hvað ég ætla aldrei að kíkja á þau aftur ein því þau eru svo frek haha, frekar leiðinlegt að vera föst í miðjunni ein.... en eitt fyndið, ég var smá að beygja mig niður og þá kemur Ugla og fer að narta í myndavélatöskuna, mér bregður og þá bregður henni líka þannig að taskan sveiflast eitthvað uppí loftið, og næ að koma mer í burtu áður en hún labbaði á mig... en svo fattaði ég að lokið á linsuna var í töskunni og hafði sveiflast uppúr, þá sný ég mér við og Ugla er komin með það uppí munnin og hélt greinilega að það væri hestanammi handa sér haha
-mér tókst að ganga frá tjaldinu síðan um helgina
-fór og sótti kýrnar ein
-rak hestana aftur inní sveltið fyrir nóttina
-og hreyfði mig í um 20 mín eftir plani í nike-appinu í símanum, það er mjög skemmtilegt og margt hægt að velja úr um, mæli alveg með því :)
annars er ég búin að vera ágætlega dugleg í að borða hollt í dag, fékk mér samt köku í kaffinu, en ekkert annað nammi, sátt við það. Ætla samt að leyta af brauðuppskrift í hollari kanntinum.
xx

Engin ummæli:
Skrifa ummæli